Kristalia Nori borðstofuborð
Einstakt Nori borðstofuborð frá ítalska hönnunarmerkinu Kristalia. Stórt og glæsilegt borð sem hentar einstaklega vel fyrir fjölskylduna og fyrir fólk sem elskar að halda matarboð og veislur.
Borðið er 2 metrar á lengd en með tveimur stækkunum er hægt að lengja það upp í allt að 3,2 metra. Í fullri stærð er hægt að koma fyrir 16–20 manns við borðið, sem gerir það tilvalið fyrir stór matarboð, hátíðir og fjölskyldusamkomur.
Borðplatan er úr dökkum wenge-við og ljós álgrindin myndar fallegt mótvægi við dökkan viðinn. Hreinar línur og látlaus minimalismi einkenna hönnunina.
Ástand: Borðið er notað og ber ummerki um notkun í samræmi við aldur og notkun.
Hönnun: Bartoli Design fyrir Kristalia, Ítalíu
Kristalia er ítalskt hönnunarmerki, þekkt fyrir vandaða, nútímalega hönnun þar sem form, gæði og notagildi fara saman.
Stærð: 200x100x75 sm
Borðið er í sölu í verslun okkar Nóatúni 17.