Hvernig veljum við inn í Lúpínu
Ein algengasta spurningin sem við fáum er hvernig við veljum inn í Lúpínu?
Stutta svarið er að við leitum ekki endilega að dýrustu hlutunum eða þekktustu vörumerkjunum. Við leitum einfaldlega að innanstokksmunum sem hafa karakter, eru vel með farnir og falla að heildarstemningu Lúpínu.
Við trúum því að fallegur vasi frá H&M Home geti átt jafn mikið erindi og einstakur hönnunargripur.
Þegar við metum hluti horfum við meðal annars til:
- Ástands og gæða
- Hönnunar og forms
- Eftirspurnar
- karakter og sérstöðu
- Hvernig hluturinn passar við núverandi úrval Lúpínu
Þess vegna henta ekki allir hlutir í Lúpínu hverju sinni. Plássið í versluninni er takmarkað og við viljum halda úrvalinu fersku, fjölbreyttu og vel samsettu.
Við höfum sérstakt dálæti á fallegum heimilismunum, vintage-fjársjóðum, góðri hönnun, litríkum smáhlutum, vönduðum fatnaði og húsgögnum sem hafa sögu að segja. Við elskum hluti sem vekja athygli, skapa stemningu og gefa heimilinu karakter.
Markmið okkar er ekki að fylla verslunina af húsgögnum og munum sem fólk vill losna af heimilinu. Við viljum velja af kostgæfni inn. Þannig verður til umhverfi þar sem hver hlutur fær að njóta sín og þar sem viðskiptavinir geta fundið eitthvað fallegt fyrir heimilið sitt.