Af hverju að selja hjá Lúpínu?
Lúpína gerir sölu á innanhússmunum, húsgögnum og fatnaði einfalda og áreynslulausa.
Hvort sem þú ert með einn stakan hlut, nokkra fallega muni eða heila búslóð, þá sjáum við um ferlið frá upphafi til enda.
Við metum, verðleggjum, stílum, myndum, markaðssetjum og seljum og í flestum bókunarleiðum sækjum við hlutina líka heim til þín.
Þú þarft ekki að svara skilaboðum, semja um verð eða skipuleggja afhendingar. Þú velur einfaldlega þá þjónustu sem hentar þér og við sjáum um restina.
Í Lúpínu fá fallegir hlutir framhaldslíf. Um leið styður þú við sjálfbærari neyslu, minnkar sóun og hjálpar til við að draga úr kolefnisspori.