Algengar spurningar
Hvernig bóka ég?
Þú getur bókað mat á þínum munum eða bókað þjónustu beint á vefnum.
Hvað get ég selt hjá Lúpínu?
Við tökum við sérvöldum húsgögnum, heimilismunum, fatnaði og fylgihlutum sem falla að stíl og gæðakröfum Lúpínu. Þú getur kíkt á tískuvegvísir til að fá betri hugmynd um hvernig við veljum vörur kíktu hér hér
EF þú ert enn óviss þá getur þú fengið innblástur hér okkar eða sent okkur póst með munum og við förum yfir þetta saman.
Hvernig veljið þið inn?
Við metum hvern hlut með tilliti til ástands, gæða, eftirspurnar og stærðar. Það er mikilvægt að heyra í okkur ef þú ert með stór húsgögn áður en þú bókar pláss í Lúpínu.
Hvað kostar að selja hjá Lúpínu?
Verð og þóknun fara eftir bókunarleið. Nánari upplýsingar má finna á bókunarsíðu.
Þarf ég að taka myndir eða skrá vörurnar sjálf/ur?
Nei. Við sjáum um skráningu, myndatökur, framsetningu, markaðssetningu.
Sækið þið hlutina?
Já, í flestum bókunarleiðum bjóðum við upp á að koma og sækja vörurnar til þín. Við sækjum hlutina eftir samkomulagi.
Hjálpið þið til með verðlagningu?
Já. Við leggjum mat á hlutina og verðleggjum þá út frá ástandi, straumum og stefnum. Að því loknum fáum við samþykki frá seljanda.
Hvenær fæ ég greitt?
Greiðslur eru gerðar upp samkvæmt samkomulagi þegar hlutur hefur selst.
Get ég selt bæði heimilismuni og fatnað?
Já. Lúpína tekur við sérvöldum hlutum fyrir heimilið sem og vönduðum fatnaði og fylgihlutum.
Hvernig hef ég samband?
Þú getur haft samband með því að senda okkur póst. Við svörum eins fljótt og auðið er. Einnig er hægt að hringja í okkur í síma 5642224 á opnunartíma verslunar.
Opnunartími verslunar
Lúpína er opin þriðjudaga til föstudaga milli 12 og 18 og á laugardögum milli 11-16. Lokað er á sunnudögum og mánudögum til að byrja með.
Vefverslun
Ekki er hægt að versla í vefverslun til að byrja með en hægt er að taka frá muni Við munu opna vefverslun brátt.