Tískuvegvísir fyrir sumarið
Íslenska sumarið er komið og með því tíminn til að taka til heima hjá sér, hressa upp á heimilið og gefa fallegum hlutum nýtt líf.
Hjá Lúpínu leitum við að vönduðum og vel með förnum hlutum sem kalla fram sumarstemningu, td, fallegu leirtaui, glösum, vösum, textíl og öðrum munum sem gera heimilið bjartara og persónulegra. Við tökum einnig vel á móti litríkum flíkum og fylgihlutum fyrir sumarveislur, brúðkaup og sólríka daga.
Húsgögn
Við höfum sérstakt dálæti á húsgögnum með karakter, góða hönnun eða áhugaverða sögu. Vintage-húsgögn, fallegir stólar, borð og lampar eiga því oft vel heima hjá okkur.
Hvað passar í Lúpínu?
Lúpína er heimur sérvaldra muna. Við veljum hvern hlut af kostgæfni og leitum að vörum sem hafa karakter, eru vel með farnar og falla að stíl verslunarinnar.
Þú mátt koma með allt frá kertastjökum og matarstellum yfir í listmuni, plaköt og fallega hönnunarvöru. Fallegur vasi frá H&M Home getur verið jafn velkominn og einstakur hönnunargripur. Það sem skiptir máli er gæði, ástand og heildarupplifun.
Við tökum hins vegar ekki við vörum frá framleiðendum á borð við Shein og Temu.
Ef þú ert með stærri húsgögn mælum við með að senda okkur mynd áður en þú bókar svo við getum metið hvort það sé pláss í versluninni.
Nýtt líf fyrir fallega hluti
Við trúum því að fallegir hlutir eigi skilið meira en eitt líf. Lúpína er vettvangur fyrir góða hönnun, vandaða hluti og sjálfbærari neyslu.