Um Lúpínu

Lúpína er hringrásarverslun þar sem notuðum húsgögnum, fallegum innanhúsmunum, fatnaði og gjafavöru er gefið nýtt líf í fallegu umhverfi. Verslunin er staðsett í Nóatúni 17.

Einstaklingar geta selt notaða heimilismuni, litla og stóra, vintage eða samtímavörur með því að bóka þá þjónustu sem hentar best og við hjá Lúpínu sjáum svo um allt ferlið, frá vali og verðlagningu til markaðssetningar og sölu. 

Sérstaða Lúpínu liggur í vöruúrvalinu, allt frá dönsku tekki til samtíma hönnunar, hver og einn hlutur fær að njóta sín í versluninni. Einnig leggjum við mikið upp á að bjóða upp á góða þjónustu þar sem seljandi þarf að gera sem minnst.

Markmið okkar er að halda Lúpínu lifandi, ferskri og síbreytilegri með vel völdu úrvali  þar sem hver hlutur fær að njóta sín.

Af hverju Lúpína?

Nafnið vísar í þær sterku skoðanir sem fólk hefur á lúpínunni sem er í senn mjög falleg og gefur lífinu lit á sumrin en dreifir sér líka ört um jarðveginn og gerir annarri ræktun oft erfitt fyrir. Fyrir sumum er lúpínan blóm en fyrir öðrum er hún arfi svolítið eins munirnir okkar. Auk þess sem hægt er að gera þá skírskotun að kauphyggja/ neysluhyggjan dreifir sér jafn ört og lúpínan. 

Þessu viljum við auðvitað breyta og er höfuðmarkmið markmið Lúpínu að stuðla að breyttri neysluhegðun, minnka sóun og kolefnissporið, efla hringrásarhagkerfið og hafa svolítið gaman í leiðinni.  

Með Lúpínu viljum við ná til sem flestra og sérstaða hennar liggur í sérvöldu úrvali, það verður engin grams upplifun, við erum búin að vinna alla vinnuna fyrir þig. 

Komið og verið lúpínur með okkur. 

Um eigendur

Vinkonurnar Berglind Halla og Hanna stóðu báðar á tímamótum þegar þær ákváðu að láta langþráðan draum um að opna litríka verslun með notuðum munum rætast.

Með Lúpínu sameinar þær ást sína á fallegri hönnun, litagleði og hugsjóninni að endurnýting er ekki bara nauðsynleg, hún á að vera eftirsóknarverð. 

Lúpína er því meira en verslun. Hún er staður þar sem fallegir hlutir fá annað tækifæri, fólk finnur nýja fjársjóði og heimilin verða aðeins persónulegri, skemmtilegri og litríkari.

Við trúum því að góð hönnun eigi skilið að lifa lengur og að sjálfbær neysla geti verið bæði skemmtileg og falleg.

Bóka pláss í Lúpínu