Uppsetning hjá Lúpínu - Áminning
Eftir rúma viku fara vörurnar þínar í sölu hjá Lúpínu. Við hlökkum til að taka á móti þeim.
Ef þú bókaðir einn stakan hlut eða smámuni þá kemur þú með vörurnar þínar um viku fyrir bókaðan dag. Við tökum á móti vörum á þriðjudögum til föstudaga milli 10 og 12. Þú færð smáskilaboð með áminningu degi áður.
Ef afhendingartímasetning hentar þér ekki, getur þú sent okkur póst á lúpina@lupinarvk.is og við finnum út úr þessu saman.
Ef þú valdir úr fatnaður, smáhlutir og minni húsgögn eða sérvalin stærri húsgögn/ hönnunarvara þá munum við hafa samband og finna tíma saman til að koma og sækja vörurnar þínar.
Við munum svo skrásetja vörurnar þínar, taka myndir af þeim og finna þeim fallega stað í verslun okkar í Nóatúni 17. Við erum staðsett í verslunarklasanum þar sem upprunanlega Nóatúns búðin var til húsa, við hliðina á Dominos.
Nóg er um bílastæði en mikilvægt er að skrá sig annað hvort í Easy park appinu eða greiða í greiðsluvél með QR kóða á bláu skiltunum til að fá 45 mínútur fríar. Einnig er hægt að leggja við Hátún ókeypis.
Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur í pósti eða hringja í síma 546-2224