Föt og smámunir og minni húsgögn (15 munir)
Þú færð áminningu þegar nær dregur að sölutímabilinu, en stefnum á að sækja allar pantanir viku áður en sölutímabilið hefst svo við höfum nægan tíma til að skrásetja þær, mynda og undirbúa fyrir sölu.
Við sækjum vörurnar til þín innan höfuðborgarsvæðisins og við munum hafa samband þegar nær dregur til að finna hentugan tíma saman.
Verð á vörum og skrásetning
Þegar skrásetningu er lokið, sendum við þér póst, þú skráir þig inn á Mínar síður, ferð yfir skráningu og samþykkir verðtillögu. Ef upp koma spurningar er best að hafa samband. Hægt er að samþykkja verð inn á Mínar síður. Ef við heyrum ekki frá þér fara vörur óbreytt í sölu. Við byggjum verðhugmyndir hverju sinni eftir ástandi, gæðum, merki og sambærilegum vörum í sölu. Vinsamlegast ekki breyta verðum inn á Mínum Síðum. Best er að hafa samband og við finnum út úr þessu saman.
Ferlið
Að því loknum setjum við vörunar í sölu á áætluðum tíma og markaðssetjum bæði á vefnum og á samfélagsmiðlum. Við munum einnig sjá til þess að setja þjófavörn á vörunar ef mögulegt er. Það eru bæði myndavélar og öryggishlið í versluninni. Hægt er að lesa nánar um öryggi og fleiri mál í skilmálum Lúpínu hér. Insert hlekkur Við hvetjum ykkur að kynna ykkur skilmála okkar.
Afsláttur á vörum
Ef þú vilt bjóða upp á afslátt á þínum vörum, er nauðsynlegt að senda okkur póst og við sjáum um breytinguna fyrir þig.
Áfylling á sölutímabili
Ef munirnir þínir seljast hratt á tímabilinu má hafa samband við okkur varðandi áfyllingu. Við metum það hverju sinni út frá plássi og heildarútliti verslunar.
Þín sala
Hægt er að fylgjast með sölu inn á Mínar síður á sérstöku mælaborði í rauntíma.
Skráning á bankaupplýsingum
Til þess að við getum greitt þér út þinn söluhagnað verður þú að skrá inn bankaupplýsingar.
Þú skráir inn bankaupplýsingar með því að fara inn á Mínar síður og smella á Prófíll.
Við leggjum inn þinn söluhagnað að frádregni söluþóknun okkar (20%) eftir að leigu líkur og búið er að sækja óseldar vörur. Útborgun er 5 til 10 dögum eftir að óseldar vörur hafa verið sóttar.
Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að greiða út sölu fyrr en að bankaupplýsingar liggja fyrir.
Myndir
Við mælum með við alla sem bóka hjá okkur að taka myndir af vörunum sem þeir ætla að selja og geyma ef ske kynni af við þurfum að nota þær seinna.
Í lok sölutímabils
Áður en sölutímabili lýkur munum við senda þér póst með öllum nánari upplýsingum um afhendingu óseldra vara. Hægt er að lesa um afhendingu óseldra vara í skilmálum okkar.