Uppsetning - Einn stakur hlutur
Þú mun fá aðra áminningu rétt áður en sölutímabilið þitt hefst, en gott að er að koma með vöruna viku áður en sölutímabil hefst til þess að gefa okkur rými til að skrásetja og mynda hana. Við tökum á móti vörum á milli 11 og 14 þriðjudaga til föstudaga.
Verð á vörum og skrásetning
Þegar skrásetningu er lokið, sendum við þér póst, þú skráir þig inn á Mínar síður, ferð yfir skráningu og samþykkir verðtillögu. Ef upp koma spurningar er best að hafa samband. Ef við heyrum ekki frá þér fer vara óbreytt í sölu. Við byggjum verðhugmyndir á hverjum tíma eftir ástandi, gæðum, merki og sambærilegum vörum í sölu. Það má ekki breyta verði inn á Mínum síðum. Verðið sem er á vörunni inn í verslun gildir.
Markaðsetning og öryggi
Að því loknum setjum við vöruna í sölu á áætluðum tíma og markaðssetjum bæði á vefnum og á samfélagsmiðlum. Við munum einnig sjá til þess að hún setja þjófavörn á vöruna ef mögulegt er. Hægt er að lesa nánar öryggi í verslun hér
Afsláttur á vörum
Ef þú vilt bjóða upp á afslátt á þínum vörum, er nauðsynlegt að senda okkur póst og við sjáum um breytinguna fyrir þig.
Þín sala
Hægt er að fylgjast með sölu inn á Mínar síður á sérstöku mælaborði í rauntíma
Skráning á bankaupplýsingum
Til þess að við getum greitt þér út þinn söluhagnað verður þú að skrá inn bankaupplýsingar.
Þú skráir inn bankaupplýsingar með því að fara inn á Mínar síður og smella á Prófíll. Við leggjum inn þinn söluhagnað að frádregni söluþóknun okkar (25%) eftir að leigu líkur og búið er að sækja óseldar vörur. Útborgun er 5-10 dögum eftir að óseldar vörur hafa verið sóttar.
Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að greiða út sölu fyrr en að bankaupplýsingar liggja fyrir.
Áfylling á sölutímabili
Ef munirnir þínir seljast hratt á tímabilinu má hafa samband við okkur varðandi áfyllingu. Við metum það hverju sinni út frá plássi og heildarútliti verslunar.
Í lok sölutímabils
Áður en sölutímabili lýkur munum við senda þér póst með öllum nánari upplýsingum um td meðferð óseldra vara. Hægt er að lesa um meðferð og afhendingu óseldra vara í skilmálum okkar.