Hvernig virkar Lúpína?

Lúpína er hringrásarverslun þar sem notuðum húsgögnum, fallegum innanhúsmunum, fatnaði og gjafavöru er gefið nýtt líf í fallegu umhverfi. 

Hvort sem um er að ræða vintage fjársjóð, fallegt húsgagn, uppáhaldsvasa eða vandaða flík, þá veljum við inn vörur sem skapa einstaka heild í Lúpínu.

Vegna takmarkaðs pláss í verslun, veljum við inn vörur af kostgæfni. 

Við leitumst eftir vel með förnum, vönduðum og áhugaverðum innahúsmunum og húsgögnum sem falla að stíl og stemningu Lúpínu. 

Því henta ekki allir munir í verslunina hverju sinni og áskiljum við okkur rétt til að velja úr það sem best passar við úrvalið okkar.

Ertu ekki viss hvað hentar í Lúpínu? Sendu okkur myndir og við hjálpum þér að velja muni og finna bestu leiðina. Hér má finna vegvísi yrir sölu í Lúpínu. 

Einn stakur hlutur

Fyrir staka muni sem standa sterkir einir og sér – ljós, list, speglar, vasar, vintage munir eða aðra fallega hönnunarvöru.

Innifalið: Verðlagning, uppstilling, myndataka, markaðssetning og sala.

28 daga 5000 kr.

25% þóknun

Smáhlutahorn

Allt að 5 hlutir

Fyrir smærri heimilismuni sem fegra heimilið, til dæmis vasar, kertastjakar, bækur, textíl, skálar og aðra skraut- eða hönnunarhluti.

Innifalið: Verðlagning, uppstilling, markaðssetning og sala.

14 dagar 9500 kr

28 dagar 14500 kr

20% þóknun

Fatnaður, smámunir og minni húsgögn

Allt að 15 hlutir

Fyrir vandaðan fatnað, innanhúsmunui og smærri húsgögnum. Til dæmis stóla, hliðarborð, spegla, málverk, töskur,  fallegar flíkur og aðra fylgihluti.

Innifalið: Við sækjum vörurnar, sjáum um uppstillingu, verðlagningu, markaðssetningu og sölu.

14 dagar 19500 kr

28 dagar 24000 kr

35 dagar 28000 kr

56 dagar 32000 kr

20% þóknun

Einstök húsgögn og hönnunarvara

Fyrir stærri húsgögn og hluti. Hvert húsgagn er metið sérstaklega með tilliti til stærðar, stíls og eftirspurnar. Fyrir stærri húsgöng líkt og sófa, og borðstofuborð er betra að senda okkur línu áður en bókað er. 

Innifalið: Mat á húsgagni, flutningur, uppstilling, myndataka, markaðssetning og öll umsýsla tengd sölunni.

28 dagar 35000 kr

18% þóknun

 Þú kemur með hlutina – við sjáum um rest.

Bóka pláss