Persónuverndarstefna Lúpínu

Lúpína Reykjavík ehf. virðir persónuvernd þína og vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópusambandsins (GDPR).

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Við kunnum að safna eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafni
  • Netfangi
  • Símanúmeri
  • Heimilisfangi vegna sendinga
  • Upplýsingum um pantanir og viðskipti
  • Upplýsingum sem þú veitir þegar þú skráir þig á póstlista

Til hvers notum við upplýsingarnar?

Við notum upplýsingarnar til að:

  • Afgreiða pantanir og senda vörur
  • Veita þjónustu og svara fyrirspurnum
  • Senda upplýsingar um nýjar vörur, tilboð og viðburði ef þú hefur samþykkt slíka móttöku
  • Bæta þjónustu okkar og vefsíðu

Póstlisti og markaðssamskipti

Þegar þú skráir þig á póstlista Lúpínu samþykkir þú að fá tölvupósta um nýjar vörur, tilboð og annað tengt starfsemi Lúpínu.

Við notum Klaviyo til utanumhalds póstlista. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að smella á „Afskrá“ neðst í tölvupóstum frá okkur.

Miðlun upplýsinga

Við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar.

Upplýsingar kunna að vera unnar af þjónustuaðilum sem aðstoða okkur við rekstur vefverslunarinnar, svo sem Shopify, Klaviyo og greiðslumiðlunum.

Vefkökur

Vefsíðan notar vefkökur til að bæta notendaupplifun og greina umferð á vefnum.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • Fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga
  • Fá aðgang að upplýsingum um þig
  • Fá rangar upplýsingar leiðréttar
  • Óska eftir eyðingu upplýsinga þegar það á við
  • Andmæla vinnslu eða takmarka hana

Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar um persónuvernd eða vilt nýta réttindi þín geturðu haft samband við okkur:

Lúpína Reykjavík ehf.
Nóatún 17, 105 Reykjavík
lupina@lupinarvk.is
Sími 546 2224