Skilmálar Lúpínu

Um Lúpínu

Lúpína er söluumboðs- og hringrásar verslun þar sem sérvaldir notaðir innanhúsmunir, vandaðar flíkur og  gæða húsgögn fá nýtt líf. 

Lúpína sér um allt söluferlið fyrir seljendur, þar á meðal móttöku, verðlagningu, uppsetningu, kynningu og sölu.

Með því að bóka þjónustu hjá Lúpínu og kaupa vörur í Lúpínu samþykkir seljandi/ kaupandi eftirfarandi skilmála:

Móttaka vara

Lúpína velur vörur með hliðsjón af gæðum, ástandi, eftirspurn og þeim gildum sem verslunin stendur fyrir 

Við áskiljum okkur fullan rétt til að hafna vörum sem að okkar mati:

  • passa ekki inn í hugmyndafræði eða stíl Lúpínu,
  • eru skemmdar eða óhreinar
  • teljast ekki söluvænlegar,
  • uppfylla ekki önnur gæðaviðmið verslunar

Móttaka vöru tryggir ekki að hún verði sett í sölu.

Verðlagning

Lúpína ákveður söluverð vara í samráði við seljanda.

Verð á þjónustu Lúpínu, svo sem bókunargjöldum og söluþóknun, eru birt með virðisaukaskatti (VSK) inniföldum. Sala notaðra muna fer fram samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt og eru verð þeirra birt í samræmi við þær reglur.

Lúpína getur lækkað verð á vörum á samningstíma, í samráði við seljanda, ef það er talið auka líkur á sölu.

Söluumboð og uppgjör

Lúpína sér um alla umsýslu tengda sölu vara. Seljandi gefur Lúpínu heimild að aðgengi undir Mínar síður til að skrásetja allar vörur með myndum. 

Þegar vara selst fær seljandi sinn umsamda hlut af söluverði samkvæmt gildandi þóknunarkerfi verslunarinnar.

Uppgjör fer fram samkvæmt nánari upplýsingum sem kynntar eru við bókun. Þegar sölutímabili lýkur og seljandi hefur sótt vörur sínar eða gefið þær áfram, fer seljandi á útborgunarlista og fær greitt eftir 5-10 virka daga. Mikilvægt er að skrá bankaupplýsingar inn á Mínum síðum svo hægt sé að greiða út söluhagnað. Eingöngu verður greitt út með millifærslu í heimabanka. Seljandi með Einn stakan hlut greiðir 25% þóknun, Smáhlutir greiðir 20%  þóknun Föt smámunir og minni húsgögn 20% þóknun og sérvalin húsgögn/ hönnunarvara 18% þóknun. Öll þjónusta í verslun er með vsk. 

Afbókanir þjónustu

Til þess að eiga rétt á endurgreiðslu þarf afbókun að berast með a.m.k. 14 daga fyrirvara og miðast það við fyrsta dag leigutímabils.

Óseldar vörur

Við lok umsamins sölutíma ber seljanda að sækja óseldar vörur innan sólarhrings eftir að leigutímabili lýkur. Seljandi fær áminningu í pósti og sms áminningu.

Sé vara ekki sótt innan tilskilins tíma áskilur Lúpína sér rétt til að:

  • innheimta geymslugjald samkvæmt gildandi gjaldskrá
  • Séu vörur ekki sóttar innan 10 daga áskilur verslun sér eignarétt á vörum
  • Hafi seljandi ekki áhuga á að sækja vörur tekur verslun að sér að keyra vörur heim gegn gjaldi
  • Hafi seljandi ekki áhuga á að eiga vörur áfram er hægt að gefa þær til verslunar inn á Mínar síður

Skil og endurgreiðslur

Allar vörur sem seldar eru hjá Lúpínu eru notaðar. Ekki er hægt að skila keyptum notuðum vörum né fá þær endurgreiddar.

Kaupanda er bent á að kynna sér ástand vöru vel fyrir kaup.

Komi í ljós leyndur galli sem ekki var upplýst um við sölu mun Lúpína leitast við að finna sanngjarna lausn í samræmi við gildandi lög.

Ábyrgð á vörum

Seljandi ber ábyrgð á því að:

  • vera lögmætur eigandi vörunnar,
  • hafa heimild til að selja hana,
  • og veita réttar upplýsingar um ástand hennar.

Lúpína ber ekki ábyrgð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum sem seljandi veitir.

Þjófnaður, tjón og óviðráðanleg atvik

Lúpína leggur áherslu á örugga meðferð allra vara og gætir fyllsta öryggis við varðveislu þeirra. Öryggismyndavélar eru í verslun.

Þrátt fyrir það geta komið upp ófyrirséð atvik, svo sem þjófnaður, eldsvoði, vatnstjón eða önnur atvik utan stjórnunar verslunarinnar.

Lúpína ber ekki ábyrgð á tjóni eða tapi sem rekja má til slíkra óviðráðanlegra atvika nema lög kveði sérstaklega á um annað.

Verði vara fyrir tjóni eða glatist mun Lúpína leitast við að finna sanngjarna lausn í samráði við seljanda.

Innbústrygging leigutaka/seljanda kann hins vegar að taka til slíks tjóns en það er alfarið í þeirra höndum að kynna sér það.

Gæði 

Við tökum ekki við vörum frá hraðframleiðslufyrirtækjum á borð við Shein og Temu og leggjum áherslu á gæði, og endingu.

Persónuvernd

Lúpína meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög.

Upplýsingar sem safnað er frá seljendum og viðskiptavinum eru einungis notaðar í tengslum við rekstur verslunarinnar, uppgjör, bókhald og þjónustu við viðskiptavini.

Persónuupplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um það eða nauðsynlegt sé til að veita þjónustuna.

Breytingar á skilmálum

Lúpína áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum án fyrirvara. Nýjasta útgáfa skilmála er ávallt aðgengileg á vef verslunarinnar.